Ég og Victorias Secret og Hallsteinio
12.12.2008 | 14:09
Ég veit ég hef talað um undirhöku og bumbu... Það er að segja að ég sjálf sé með slíkt eins og þið hin. En í raun og veru er ég bara að grínast...
Ég er svo frábær að mér var boðið að taka þátt í Victorias Secret Fashion Show. Viljði spá? Ég var Jólastjarnan í lok sýningarinnar...
Ég er líka gift mjög frægum hjartaknúsara... Hallsteinio
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er uppskrift endilega það besta?
8.12.2008 | 23:41
Hef aðeins minnst á kjólinn sem ég hef verið að prjóna. Manstu, hér?
Ennívei. Ég er haldin þeim kvilla að notast helst ekki við uppskriftir þegar kemur að prjónamálum. Þannig að ég missti svolítið stjórn á málunum...
Reyndi að hafa þetta svolítið framúrstefnulegt en þannig að ég drægi athyglina frá bumbunni og undirhökunni.
Það er eitthvað skrýtið við hvernig þetta endaði... eða hvað finnst þér?
Ég bætti um betur og gerði smá til viðbótar á vini mína. Finnst þér þetta ekki smart?
En svona í alvöru talað þá er kjóllinn löngu klár. Ég þarf bara aðeins að hitta konu í Kópavogi út af ermunum.
Bloggar | Breytt 9.12.2008 kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færa sig uppá skaftið...
3.12.2008 | 12:15
Myndir segja meira en orð. Hér eru myndir af vinnustaðnum. Þetta eru mínar hillur.
Tókstu eftir einhverju?
Já. Og þeir eru 4 saman.
Í návígi.
Hehehehe.....
Og ekki nóg með það! Heldur...
Hah!
Kveðjur frá Huppu á bás nr. 8
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þanebblega þa
2.12.2008 | 16:45
Ég og Yngri Sonur erum á leið heim á bílnum. Vorum úti í búð. Erum á leið heim í myrkrinu og keyrðum úr stæðinu hjá blómabúðinni þar sem allt er svo huggulega skreytt með jóla þessu og jóla hinu og seríum út um allt.
-Yngri Sonur. Þú verður bara að afsaka hvað ég er ömurleg mamma. Ömurlegur uppalandi. Það eru engar jólaseríur komnar upp. Enginn aðventukrans í gær. Jadíjadíjadí..... Alveg skrúfað frá móðurlegu samviskubitinu.
Hvernig svarar þessi elska?
-Mamma. Jólaskraut og seríur skipta engu máli. Það hefur ekkert með uppeldið að gera.
Vá. Síðan hvenær fullorðnaðist litla barnið mitt?
P.s. Það hjálpar kannski að þeir bræðurnir fengu jóladagatal a la amma í Englandi. Aðalatriðin eru á hreinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frakkur
30.11.2008 | 14:06
Erum með fjölskyldumeðlim sem stundum gistir hjá okkur þegar foreldrarnir bregða sér af bæ... í þessu tilfelli til Flórída og ég öfunda þau ekki neitt... Núna er hann hjá okkur í rúmlega viku. Það er mikil ábyrgð að passa fyrir aðra og það er ansi langt síðan maður var með smábörn.
Því var föstudagsnóttinn ansi erfið fyrir okkur hjónin. Sá litli sem við erum að passa tók upp á því klukkan hálftvö um nóttina að fara að kúgast. Þvílík óhljóð! Ðööö Ðööö Hóst! Ðööö Ðööö Hóst! Svona gekk þetta í þrjá klukkutíma.
Vissum ekki alveg hvað við ættum að gera. Lækni? Bíða og sjá?
Við sendum sms til systur Eiginmannsins: "Ertu vakandi?" Ekkert svar. Ég tók þá símann... klukkan var jú orðin fjögur um nóttina... tíu á Flórída eða ellefu... og vildi vita hvort við ættum að tala við lækni eða hvað?! Enginn svaraði enda slökkt á símanum. Hvílíkt ábyrgðarleysi...
Á endanum leið þetta hjá og við þrjú gátum sofnaði um fimm-leytið um morguninn.
Hér eftir pössum við vel uppá hvað hann Frakkur lætur ofan í sig á göngutúrunum.
Útvarp Mosfellsbær... nú verða sagðar veðurfréttir
28.11.2008 | 15:34
Hér er tölvupóstur frá mér til vinnufélaga eftir hádegismatinn í gær. Ég hafði fengið upplýsingar um veðrið fyrir norðan í tengslum við að bíll á vegum fyrirtækisins væri fastur. Mér fannst þetta heldur nákvæmar lýsingar frá vinnufélaga, það væri nóg að segja að bíllinn væri pikkfastur. Því fór þetta til baka.
Sigríður > On
Þann: Fim 14:21
Mesti 10 mín. vindur: 46 m/s (svínið í hádeginu)
Mesta hviða: 50 m/s (sjá gatið í stólnum)
Sorrí. Get bara ekki að því gert. Ég fæddist svona.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hroooooot.....
27.11.2008 | 11:53
Ef ég vakna allt í einu slefandi ofaní lyklaborðið þá verður mér örugglega fyrirgefið af yfirmanninum.
Þegar ég stend upp úr stólnum sé ég þetta....
... og það er grafarþögn. Ég sný mér við og þá blasir þetta við mér.
Afsakið ef ég missi meðvitund... af skreytingarleysi. Kveðjur frá Huppu á bás nr. 8
P.s. Hugsanlega taka glöggir lesendur eftir þessu
Í nærmynd...
Hér er ákveðin uppreisn í gangi. Svokölluð hljóðlát uppreisn.
Húsvörðurinn okkar hefur ákveðið að ekkert skuli vera ofan á skápunum því að arkitektinn sagði það fyrir 2. árum... eins og hún tékki eitthvað á því
Læt ykkur vita hvað gerist...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Finnst ykkur þetta vera of snemmt?
26.11.2008 | 19:17
Sko... fyrst nágrannarnir hafa fest upp jólaseríur í alla glugga... þá... er nú allt í lagi að sýna ykkur mitt hús...
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var lengi að finna biluðu peruna. Þetta er tekið eftir þá raun...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Lík á svölunum
25.11.2008 | 16:01
Ég er að fara að vinna minn part af nautinu (1/8) heima hjá Hlaupdísi. Hlaupdís er svæfingarlæknir með meiru og hlaupari mikill. Í mínum huga er hún það því að hver getur gleymt bláu og glansandi hlaupabuxunum.... Það er enginn nema alvöru hlaupari sem lætur sjá sig í slíku. Hlaupdís er líka með besta (og flottasta) eldhúsið til að vinna gripinn.
Líkið þ.e.a.s. nautið er úti á svölum hjá henni. Hún vonar að nágrannarnir hafi ekki áhyggjur að hún hafi tekið með sér mistökin heim af skurðarborðinu....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)