Jólaskap
8.12.2009 | 22:44
Jæja, þá er nú jólaskapið að færast yfir heimilisfólk.
Búið að skreyta runnana að utan.
Crappy pictures are entirely due to the fact that the Technical Department is up to his ears in bookbinding, as in books for Christmas presents...
Þið vitið að tæknideildin er önnum kafin við að búa til bækur landsmanna og því verða myndir áfram í þessum gæðaflokki þar til kemur að jólum...
Setja upp jólahúsin inni í eldhúsi.
Stilla Muho og jólakettinum upp hjá Skyrgámi, Stúf, Kertasníki, Askasleiki og . Mig vantar bara 8 jólasveina, grýlu og leppalúða... ha mamma?... tókstu vel eftir? 8 + 2? Erum við að tala um 10 ár í viðbót...? Eight more Icelandic santas to go... Mom graciously buys me one every year... so we're talking about 8 more years until all 13 santas have arrived...
Ég býst ekki við því að jólagjafainnkaupin fari af stað fyrr en prófin eru yfirstaðin... Eru þeir ekki duglegir þessar elskur? Ha? Glósurnar eru við endakallinn... Ze boyz are diligently studying are they not... or not?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Danspartí
7.12.2009 | 16:50
Hver hefur ekki verið á útihátíð/árshátíð/partíi þar sem maður sér einhvern einn fullan/í annarlegu ástandi í eigin fíling að dansa við sjálfan sig.
Svo kemur svona óvæntur glaðningur... Þetta hélt maður að gerðist bara í bíómyndunum eða hvað? Þessi útgáfa er skemmtilegri en lélegri upptökugæði Lagið er Unstoppable með Santigold.
Frábært atriði... Sjáðu bara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Að gefa gjafir...
6.12.2009 | 02:22
Sjáum nú til. Við mamma ákváðum að fara smá jólamarkaðsrúnt og reyna að finna jólagjafir handa fjölskyldumeðlimum. Það er svo gaman að gefa gjafir.
Fyrst fórum við í Ásgarð. Þar keypti hún 3 gjafir handa sér og ég keypti 2 handa mér. Þetta var bara ómótstæðilegur hestur kind kýr égtekmérþaðskáldaleyfiaðkalladýrið Muho.
Muho var ekki sá eini sem ég féll fyrir. Þarna var einmitt jólakötturinn fyrir íslensku jólasveinana sem ég er að safna (þessir sem Brian Pilkington hannaði). Sko kisu. Ekta jólaköttur sem étur óþekku börnin. Heyriði það unglingar? Ha?
Næst var farið í Jólaþorpið (copyrightpending á því nafni...) í Hafnarfirði. Oh.. það var svo margt flott þar. Til dæmis krúttleg eplastöng. Sem ég keypti handa mér. Til að gefa fuglunum epladesert.
Svo var þarna svakalega sætt jólatré. Hægt að setja sprittkerti innaní. Svo krúttlegt með jólakettinum og jólasveinunum ekki satt?
Mamma keypti sér 3 kertastjaka og eplastöng.
Síðan var haldið í Kringluna. Þar keypti ég mér bráðnauðsynleg kanilkerti til að gera jólailminn enn meiri heimafyrir. Þið munið náttúrulega eftir kransinum sem við gerðum? Æðisleg grenilykt þar en stofan er svo stór... Ég bara varð að kaupa þessi kerti.
Það er bara svo gaman að leita að gjöfum handa öðrum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Krummi krunkar úti
5.12.2009 | 17:47
Við mamma fórum á jólamarkað Ásgarðs í Mosó. Til að leita að jólagjöfum. Þar féll mamma fyrir Krumma.
Við komum heim og hún sýndi strákunum gripinn.
Ummm... viðbrögð strákanna voru frekar fyndin. Þeir eru svo kurteisir. Sáu ekki alveg fegurðina í þessum grip. [Eigum við að segja eitthvað eða bara sitja með frosin kurteisisbros? Sitjum bara með kurteisisbros. Ehemm.. yes... very nice granny...]
Jæjajá... Held ég hafi einmitt ætlað að... já...
...og ég gleymdi alveg að ég... ætlaði að... ókeibæ...
Það gæti hafa flýtt fyrir flóttanum að við mæðgurnar urðum mjög fyndnar... vægast sagt þroskaðar...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öppdeit á netleysi eða gott ráð til foreldra ;o) Good parenting advise
4.12.2009 | 12:13
Manstu þegar ég sagði frá því að netbann væri innleitt á heimilinu? Ekki það nei? Ég sagði frá því hér. Ennívei. (Hvísl) Það svínvirkar!
Ekki. Segja. Strákunum. Þetta snarbætti skapið þeirra og hvatti þá þvílíkt til dáða við að klára heimavinnuna. Það meira segja sést í þá á öðrum tímum en matmálstímum.
Ég er ekki að segja að þetta hafi verið fullkomið frá fyrstu sekúndu... eins og þið vitið. Við þurftum að endurskoða hvenær netleysið væri eftir 2 öööööööömurleg kvöld, fimmtudag og sunnudag.
Dæminu var snúið við. Netlaust þar til eftir kvöldmat.
Svínvirkar.
In English... controlled internetconnection works wonders! After dinner has been the only connection time and this means... (whisper) fewer moodswings and actual interaction on times other than dinnertime ...among the teenage population of this household.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sérhannaður aðventukrans
3.12.2009 | 14:15
Við sátum öll... eða næstum öll því Eiginmaðurinn var að vinna við að setja saman jólabækur landsmanna... og gerðum aðventukransinn.Er hann ekki flottur?
Ef ske kynni að þú misstir af smáatriðunum þá...
(Hvísl)...ég veit að myndirnar eru hræðilegar en því miður er tæknideildin störfum hlaðin við að búa til jólabækur fyrir alla landsmenn...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skemmtilegt
2.12.2009 | 12:38
Segið svo að unglingar hafi ekki gaman af ýmsum jóla-verkefnum! Við sátum í gær og bjuggum til kókoskúlur.
Ofsa gaman. Mikið spjallað og þá sérstaklega um hvaða stærð væri rétta stærðin á svona kókoshafrakúlum.
Ákveðið gæðaeftirlit var í gangi. Þessi kúla samræmist ekki kröfum. Burt með hana... ofan í maga.
Tæknin var þróuð. Mismunandi áherslur eftir á hvaða aldri kúlandinn var... hehehe...
Menn þróuðu með sér ákveðna tækni meira að segja. Allt eftir smekk... og þroska...
Svo voru enn aðrir heimilismenn sem höfðu það kósí og kúrðu yfir spennumynd. Þeir fá líka að njóta afrakstursins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fulleldisdagurinn?!
1.12.2009 | 20:13
Er ég eina manneskjan sem tók eftir því að í heilsíðuauglýsingu Sjálfstæðisflokksins var landsmönnum óskað til hamingju með FULLELDISDAGINN?
Hvaða dýr er full? Nei bara spyr því ég velti fyrir mér hvort ég geti staðið að eldi á full-i í hjáverkum daginn út og inn.
Bloggar | Breytt 2.12.2009 kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brúðkaup og skilnaður með stæl
28.11.2009 | 15:17
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
The Hero
27.11.2009 | 23:41
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)