Einmitt!
20.6.2009 | 03:35
Sjáið vin minn Fatty og hans hjólafélaga fara í smá hjólreiðatúr. G.M.G.! Bíddu í 1 mínútu! Sjáðu!
Grove II: This Time We Show the Downhill from Fat Cyclist on Vimeo.
Jesús minn! Eins gott að þeir eru ekki að hjóla hér. Í dag. Á litla titrandi Íslandi...
Athugasemdir
Einmitt, akkúrat rétti staðurinn til að hjóla á, ég hefði annaðhvort snúið við eða já bara snúið við :-)
Ég var farinn að halla mér það mikið í stólnum að ég datt næstum úr honum :-)
steinimagg, 23.6.2009 kl. 13:15
Ó, ég verð bara forvitin að sjá hvort stígurinn þrengist nokkuð meira, ég myndi hjóla áfram ;)
Hjóla-Hrönn, 23.6.2009 kl. 15:59
Hrönn, þú ert nagli. Jesús minn! Ég hefði stigið af hjólinu og gengið grenjandi af hræðslu fyrir hornið með hjólið á eftir mér.
Hallsteinn, þú hefðir pottþétt hjólað þetta af þinni einstöku snilld... og hjólað til baka til að fylgja mér fyrir hornið
Sigga Hjólína, 23.6.2009 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.