Pirr pistill

Aðeins að fá smá útrás gagnvart öðru fullorðnu fólki sem býr í Mosfellsbæ.....

Það er ekki of mikið mál að setja Bónuskerruna í kerrustæðið eða fara með hana inn. Annars renna þær til og skemma bílana á stæðunum.

Það er hámark sóðaskapsins að henda rusli út um bílgluggann. Hvað er að ykkur?

Hvernig væri að hætta að leggja á gangstéttina fyrir framan innganginn í Kjarna (Bónusmegin), sérstaklega þið þarna ungu og fílefldu karlmennirnir? Hallærislegt.

Stubbiði sígarettuna í öskubakkann inni í bílnum en ekki henda henni út um gluggann. Skammistykkar.

Kenniði krökkunum ykkar að gatan er ekki ruslafatan fyrir umbúðirnar af því sem var keypt. 

Þetta er ekkert flókið.

Beriði virðingu fyrir umhverfinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Það versta við þetta allt saman er að sumt af þessu fólki sem ekki ber virðingu... pirrar sig.

Ég er 100% sammála þessum pirring þínum.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 18.5.2008 kl. 11:51

2 identicon

Gæti ekki verið meira sammála þér nafna mín...er svo ekki labbi labbi skór skór á þriðjudag eða var þetta bara einstakt atferli hjá ykkur þarna um daginn???

Systa (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband