Kötturinn Smári

Við eignuðumst kött í sumar.

Reyndar kom hann ekki til okkar fyrr en hann var tilbúinn, uppúr miðjum ágúst.

Við fórum allaleiðina í Grímsnesið til að sækja hann en vorum samt búin að velja nafnið á hann. Leiðrétting... Eiginmaðurinn valdi nafn á hann um leið og hann leit hann augum... hann bara féll kylliflatur fyrir honum. Mér finnst hann voða krútt. Við erum núna að tala um Smára... einbeita sér smá!

Hann er með svo skínandi skott.

smaraskott.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo fallega litaðan feld.

smarilitli_1042837.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo saklaus augu.

smariface.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Ooooh Smári, þú ert svo mikið krútt.

Skaparinn heitir Einar og býr á Sólheimum. Þvílíkur listamaður.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki veit ég hvad hann kostadi.....en dýr má hann vera thví thetta er púra list eins og hún gerist best. 

Gód kaup og til hamingju med dýr-gripinn.

Jú thad er nú satt (IP-tala skráð) 16.11.2010 kl. 23:50

2 Smámynd: Sigga Hjólína

Takk fyrir það. Smái kostaði svipað og einir íþróttaskór á unglingana. En miðað við 60 cm vasann sem seldist á uppboði í Bretlandi um daginn á 7,7 milljarða má segja að verðið á Smára hafi verið gjafverð .

Sigga Hjólína, 17.11.2010 kl. 09:56

3 Smámynd: Sigga Hjólína

Smári er greinilega kominn með viðurnefnið Smái. Svona er að flýta sér...

Sigga Hjólína, 17.11.2010 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband